|
19.09.2006 08:55:15 / puma
Þeir sem hafa velt því fyrir sér hvers vegna ekkert gerist á
þessari síðu geta nú andað léttar þar sem REKI er fluttur um set á
veraldarvefnum og kominn á slóðina;
http://reki.fsha.is
Kær kveðja
Stjórnin
»
16.05.2006 22:48:13 / puma
Jæja þá eru komnar inn myndir frá því á laugardaginn. Þannig að
þið sem fóruð getið rifjað upp þessa snilldar ferð og þið hin séð
af hverju þið voruð að missa. 
Ef að það eru einhverjir fleiri sem eiga myndir endilega látið
okkur vita.
over and out
Linkurinn er hérna til hliðar.
»
12.05.2006 11:50:14 / puma
Þá er skráningu lokið í ferðina og eftirtaldir skráðu sig:
Birkir, Lúlli, Árni, Héðinn, Einar, Baldvin, Rakel, Gústi, Sara,
Sunna, Helga, Ási +1, Auður, Stefán, Elías, Erla, Linda, Víðir.
Þetta gerir samtals 19 manns og ef einhver sem skráðir eru hér
fyrir ofan en ætla ekki að fara eru þeir vinsamlegast beðnir um að
hafa samband sem fyrts!!
Takk fyrir góða skráningu og sjáumst hress!!
Kv. stjórnin.
»
11.05.2006 22:45:49 / puma

Í tilefni þess að Reka-krúsidúllurnar á þriðja ári eru að syngja
svanasöng sinn í Háskólanum á Akureyri þá hafa þeir nemendur sem
eftir eru ákveðið að kveðja þau með viðeigandi hætti á efri hæð
Kaffi Amour næstkomandi laugardag kl. 22:00. Tilboð verða í gangi á
barnum allt kvöldið og að auki býður Reki upp á frían bjór úr
(labba)kútnum meðan vörubirgðir endast (gefum skít í
öryggisbirgðirnar).
Allir eru hvattir til að mæta og kveðja útskriftarnemana með
stæl!! Þeir eiga það svo sannarlega skilið.
Með próflokakveðju
Stjórn Reka.
ps. Skráning fyrir áður auglýsta próflokadjammferð eru enn í
fullum gangi hér í færslunni fyrir neðan og eru allir hvattir til
að skrá sig.
»
08.05.2006 21:23:40 / puma
LAUGARDAGURINN 13. maí 2006!!!
Eftir dágott stjórnleysi undanfarið er ný stjórn tekin við hjá
viðskiptadeild Reka. Þar sem nú líður að próflokum er fyrirhugað að
skella aftur á dagskrá dekurferð sem frestað var eftirminnilega hér
á dögunum þrátt fyrir metskráningu. Meiningin er að gera þetta að
próflokadekurdjammferð og er áætlunin eftirfarandi:
14:00 Brottför með rútu frá HA við Sólborg.
Jarðböðin við Mývatn
Skoðunarferð í Vogafjósið
Grill og sprell á tjaldsvæðinu Bjargi við Mývatn
Um kl. 21:00 Heimkoma til Akureyrar.
Allir að mæta svo á Amour þar sem við verðum með kút og þau ætla
að vera með einhver tilboð á barnum.
Ferðin er ÓKEYPIS!!!
Eftir heimkomu gefst fólki tími til að gera sig fínt (fínna)
áður en sameiginlegt djamm hefst. Þótt fólk fari ekki í ferðina er
því að sjálfssögðu velkomið að taka þátt í sameiginlega
djamminu.
Skráning í ferðina er í commentin hér, og er fólk eindregið
hvatt til að skrá sig. Deadline í skráningar er kl. 12:00 (hádegi)
á föstudaginn 12. maí!!!.
Kærar kveðjur
Ný stjórn Reka.
»
22.04.2006 18:23:49 / puma
Dekurferðinni er FRESTAÐ UM ÓÁKVEÐINN
TÍMA.
Þetta var gert með
samþykki Birkis og Balla
kv. Stjórnin
»
17.04.2006 19:26:06 / puma
Dekurferð 2006.
Sunnudagur 23. apríl
Brottför kl. 15:00
Heimkoma kl. 20:00
Viðkomustaðir: Jarðböðin og dýrindis veitingastaður við Mývatn
Kostnaður: ENGINN
Skránin hér í commentin.
Deadline er fimmtudagurinn 20.apríl kl. 23:55
Bestu kveðjur
Stjórnin
»
17.04.2006 19:23:21 / puma
Jæja þá er páskarnir búnir og færri dagar eru í prófin.
Rétt fyrir páskafrí var aðalfundur þar sem ný stjórn var kosin.
Mæting var gríðarleg og stemningin rosaleg.
Ný stjórn er þá svona:
Formaður: Rake Ýr (1.ár)
Ritari: Lúlli (1.ár)
Gjaldkeri: Einar (1.ár)
Meðstj.: Birkir (1.ár)
Meðstj.: Nýnemi á haustönn 2006
Það er vonandi að þessir hressu stuðboltar komi til með að gera
góða og betri hluti á komandi námsári.
Til hamingju Ísland!
»
15.04.2006 11:16:55 / puma
Í umræðunni er að fara í dekurferð svona rétt fyrir próf.
Sunnudagurinn 23.apríl er skotmarkið. Hugmyndin var að leggja af
stað upp úr háddegi og taka stefnuna á Húsavík. Þar á að kíkja á
nokkur tippi á reðursafninu áður en haldið verður á Mývatn í
jarðböðin. Þar er ætlunin að slaka vel á og jafnvel fá sér ís og
einn kaldann ofaní. Eftir það væri svo gaman að fara út að borða
einhverstaðar í nágreninu.
Heimkoma væri einhverstaðar um og yfir kvöldmat. Þetta yrði að
sjálfsögðu í boði REKA.
Þetta verður þó ekki gert nema með lágmarksþáttöku 20 manns. Þeir
sem hafa áhuga á að koma með okkur eru beðnir um að skrá sig hér í
commentum.
kveðja
Stjórnin
»
13.04.2006 13:44:30 / puma
Aðalfundur REKA var
haldinn í gær
og þökkum við þeim sem sáu sér fært
að mæta kærlega fyrir skemmtilega kvöldstund
Ný stórn hefur verið
kosin
Rakel Ýr Sigurðardóttir,
formaður
Einar Hafliðason,
gjaldkeri
Lúðvík Freyr Sæmundsson,
ritari
Birkir Örn Stefánsson,
meðstjórnandi
Fráfarandi stjórn óskar þeim
velfarnaðar á komandi stjórnartímabili.   
»
09.04.2006 23:52:18 / puma
Þá fer að líða að lokum þessa skólaárs og eins og lög gera ráð
fyrir þurfum við að halda aðalfund REKA. Hann verður sem hér
segir:
Miðvikudagurinn
12.apríl
kl.
19:00
Veitingar í boði
REKA.
stofa K201
Dagskrá;
Venjuleg aðalfundarstörf. (Skýrsla stjórnar, ársreikningur og
kosning nýrrar stjórnar)
Þeir sem hafa áhuga á að starfa í nýrri stjórn á næsta ári eru
beðnir um að hafa samband við stjórn. Kjósa þarf í allar
stöður
kv. Stjórnin
»
05.04.2006 19:23:54 / puma
Næstkomandi fimtudagskvöld verður fyrirlestur
í Landsbankanum um stöðu og horfur á fjármálamörkuðum og
hvaða fjárfestingarkostir henta þér.
Fyrirlesturinn verður haldin í útibúi Landsbankans kl 20:00
Skráning á fyrirlesturinn fer fram á www.landsbanki.is eða
í þjónustuveri bankans í síma 410-4000
»
29.03.2006 15:22:06 / puma
Heil og sæl öll sömul!!!
Á föstudaginn er aðalfundur FSHA og ætlum við auðvitað
öll að mæta. Þar sem það er svo langt síðan við
höfum gert eitthvað saman ætlum við að halda smá teiti áður.
Húsmóðirin að Munkaþverárstræti 18 í kjallaranum ætlar að
bjóða okkur heim og hver veit nema að hún lumi kannski á góðum
veitingum. Teitið mun byrja klukkan 18 og eftir það verður svo
farið á aðalfundinn í Oddfellow.
Eftir aðalfundinn stendur svo FSHA fyrir sveitarballi og verða
rútur sem munu ferja fólkið á milli. Það kostar litlar 500 kr. bæði
í rútuna og á ballið.

Vonumst til að sjá sem flesta.
»
23.03.2006 16:41:43 / puma
Jæja þá er verið að spá í að fara í dekurferð rétt áður
en að prófin byrja.
Við erum að spá í að fara í jarðböðin í Mývatnssveit og
láta stressið líða úr okkur, svo förum við og fáum okkur eitthvað
gott að borða og hver er ekki til í að skella sér svo í partý á
eftir.
Við erum að spá í að fara laugardaginn 22 apríl, hvernig
lýst mannskapnum á það? endilega látið heyra í ykkur.
»
01.03.2006 14:33:12 / puma
Nú eru aðeins þrír dagar í árshátíðina og
undirbúningur í fullum gangi  
Miðaverð er 3500 kr og búið er að senda
nánari upplýsingar á alla nemendur um miðasölu o.fl. Gleðin verður
haldin í Sjallanum og byrjar með fordrykk kl.
19:00. Borðhald hefst svo stundvíslega kl.
20:00.
Veislustjóri verður Þorsteinn Guðmundsson og mun hann
halda okkur léttum á meðan við gæðum okkur á dýrindis veigum og
horfum á skemmtiatriði. Upp úr miðnætti munu þeir Jónsi og félagar
Í Svörtum Fötum trylla lýðinn eins og þeim einum er lagið.
Matseðillinn ljúffengi er sem hér segir:
Forréttur
Ljúffeng laxaþrenna með basilikubrauði
Aðalréttur
Kjöttvenna: Kjúklingabringur og lambabuffsteik með fylltum
tómat, gljáðu grænmeti og villisveppasósu
Eftirréttur
Jökultoppur með ferskum ávöxtum, regnbogasósu og
súkkulaðistrimlum.
Þemað er mafían og mun hinn íslenski ,,Godfather” stíga á
svið.
Smellið ykkur í mafíufötin, ballskóna og með vindilinn
milli varanna og sjáumst hress og kát á Sjallanum á laugardaginn!!
          
»
Síður: 1 2 3 ... 8
|